Um Tromba

Martin Markvoll er norskur tónlistarkennari búsettur í Stykkishólmi. Hann útskrifaðist frá Nordnorsk Musikkonservatorium í Noregi en hann stundaði nám þar undir leiðsögn Arne Björhei. Martin hóf starf við Tónlistarskóla Stykkishólms haustið 2003. Hann kennir þar á öll málmblásturshljóðfæri og stjórnar Lúðrasveit Stykkishólms en hann hefur útsett mikið af lögum fyrir lúðrasveitir. Hann hefur einnig unnið sem tónlistarkennari í Noregi og þjálfað lúðrasveitarkennara í Suður-Afríku á vegum Bands Crossing Borders.